Fara beint í spjallið

Efnisflokkur

Nám, ritgerðir og verkefnaskil

Ritgerð á íslensku er ekki þýdd enskuritgerð. Fyrirsagnastigin, tilvísanavenjur og orðfærið eru önnur, og kennarinn sér muninn strax.

Hér byggirðu verkefnið upp skref fyrir skref: afmarkaða rannsóknarspurningu, kaflaskipan með orðafjölda, aðferðakafla sem tekur á úrtaki og skekkjum, og heimildaskrá þar sem það sem er óstaðfest er merkt óstaðfest í stað þess að vera skáldað.

Líka fyrir styttri verk: glósur upp úr námsefni, samantekt á löngum texta, æfingaspurningar fyrir próf og útskýringar á því sem stendur á þér.

Spyrja Hafdísi núna

5 tilbúnar fyrirspurnir í þessum flokki

Hver þeirra er fullbúin íslensk fyrirspurn. Smelltu á hana á forsíðunni og svarið kemur strax — eða lestu hana hér og orðaðu þína eigin útgáfu.

  1. BS-ritgerð frá grunni

    Rannsóknarspurning, kaflaskipan, aðferð og tímaplan.

    Hjálpaðu mér að byggja BS-ritgerð frá grunni um efnið sem ég nefni. Byrjaðu á þremur mögulegum rannsóknarspurningum með rökum fyrir því hver þeirra er best afmörkuð, veldu eina og settu fram tilgátu. Skilaðu svo fullri kaflaskipan með áætluðum orðafjölda á hvern kafla, aðferðakafla sem tekur á gagnasöfnun, úrtaki og skekkjum, og lista yfir tíu tegundir heimilda sem ég ætti að finna. Endaðu á tímaplani yfir tólf vikur með skiladagsetningum.

    BS ritgerðlokaverkefniMA ritgerðrannsóknarspurning

  2. Tíu blaðsíðna skýrsla

    Fullbúin skýrsla með samantekt, töflum og heimildaskrá.

    Skrifaðu skýrslu um efnið sem ég nefni, um tíu blaðsíður að lengd. Byggðu hana svona upp: titill, samantekt fyrir stjórnendur í fimm punktum, inngangur, aðferð, þrír meginkaflar með númeruðum undirköflum, tafla með helstu tölum, niðurstöður, tillögur í forgangsröð og heimildaskrá. Notaðu markdown-fyrirsagnir, haltu tóninum hlutlausum og merktu skýrt hvar þig vantar gögn eða þarft staðfestingu.

    skýrslagreinargerðverkefnaskilsamantekt

  3. Glósur upp úr námsefni

    Langur texti í glósur sem hægt er að læra af.

    Ég lími inn námsefni. Búðu til glósur úr því: fyrst yfirlit í fimm punktum, svo efnið sjálft í tölusettum köflum með feitletruðum lykilhugtökum og stuttri skýringu á hverju. Bættu við töflu yfir hugtök sem er auðvelt að rugla saman. Endaðu á tíu æfingaspurningum með svörum neðst, og þremur atriðum sem eru líklegust til að koma á prófi. Allt á skýrri íslensku, engin ensk hugtök án íslenskrar þýðingar.

    glósurpróflesturnámsefnisamantektæfingaspurningar

  4. Útskýrðu fyrir mér

    Þrjú lög af dýpt: barn, unglingur, fagmaður.

    Útskýrðu efnið sem ég nefni í þremur lögum. Fyrst í einni málsgrein sem tíu ára barn skilur, með einu dæmi úr íslenskum hversdegi. Svo í fjórum málsgreinum á framhaldsskólastigi þar sem hugtökin eru nefnd réttum nöfnum og skilgreind. Loks á fagstigi með nákvæmum hugtökum, því sem er umdeilt og því sem er enn órannsakað. Endaðu á algengasta misskilningnum um efnið og af hverju hann er rangur.

    útskýringkennslaskilja efnieinfalt mál

  5. Hvar finn ég heimildir?

    Íslenskir gagnagrunnar og hvað hver gefur.

    Ég er að skrifa um efnið sem ég nefni. Segðu mér hvar ég finn raunverulegar heimildir um það á Íslandi: hvaða gagnagrunnar, söfn, stofnanir og tímarit koma til greina, hvað hver þeirra geymir og hvernig ég leita í þeim. Nefndu bæði íslenskar leiðir (Landsbókasafn, Hagstofa, Tímarit.is, Skemman, Alþingisvefurinn, Stjórnarráðið) og erlendar. Búðu ALDREI til heimild eða vefslóð — ef þú ert ekki viss, segðu það. Endaðu á fimm leitarorðum sem virka best.

    heimildirSkemmanTímarit.isLandsbókasafngagnagrunnar

Aðrir efnisflokkar